KYNNSTU HÓLMURUM

Það er engin leið betri til að kynnast ólíkri menningu en að kynnast heimafólki. Íbúar Stykkishólms eru kallaðir Hólmarar.

Á ferð þinni um friðsæla sjávarþorpið okkar munt þú sjá, og vonandi hitta, fullt af Hólmurum. Þeir eru af öllum stærðum og gerðum.

Um leið og þú ávarpar þá munu þeir heilsa þér með brosi og gefa meðmæli með sínum uppáhaldsveitingastöðum, vísa veginn að földum perlum eða jafnvel bjóða þér í mat.

Innst inni langar þeim að spjalla og deila sínum uppáhaldssögum um heimabæinn… eða um fjölskylduna sína og gæludýr.

Ef þér dettur ekkert umræðuefni í hug, þá er alltaf öruggt að veðja á veðrið.

 
HOLMARI_1.jpg
HOLMARI_2.jpg
HOLMARI_4.jpg