Glæpa og draugahátíð - Hræðileg helgi!
Morðgáta, glæpir & draugar í Hólminum 13. - 14. febrúar.
Hólmarar eru búnir að búa til spennandi morðgátu sem þarf að leysa. Hver er fórnarlambið og hver morðinginn? Komdu í Hólminn og leystu morðgátuna!
ATH. 2-4 saman í liði.
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR
Kl. 14:00-17:00 Amtsbókasafnið
Hræðilegur ratleikur fyrir börn.
Kl. 16:00 - 17:00 Norska húsið
Barnadraugahús.
Kl. 17:00 Tónlistarskólinn í Stykkishólmi
Morðgáta.
Morðgátu vettvangur verður opin:
Föstudag: kl. 17:00 - 22:00
Laugardag: kl. 13:00 - 18:00
Svari við morðgátunni skal skilað í kassa á Fosshótel, hægt er að skila svari til kl. 20:00 laugardaginn 14. febrúar.
Kl. 19:30 - 20:30 Norska húsið
Draugahús fyrir fullorðna opið.
Kl. 21:00 Fosshótel
Hugleikur Dagsson húmoristi, listamaður og einlægur aðdáandi hryllingsmynda verður með svæsna umfjöllun og sýnir brot af því besta.
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR
Kl. 12:30 Tónlistarskólinn í Stykkishólmi
Jazzhrekkur - ókeypis fjölskyldutónleikar
Er tónlistardraugur í Tónlistarskólanum í Stykkishólmi? Eða dansandi köngulær? Hefur norn lagt álög á allt fullorðna fólkið?
Tónleikadagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem reiddir eru fram jazztónar byggðir á þjóðtrú um að á tímamótum verði skilin milli mannheims og heims hins yfirnáttúrulega óljós; draugar, uppvakningar, nornir, álfar, huldufók birtast.
Kl. 14:00 - 16:00 Sjávarpakkhúsið
Kl. 14:00 Vandræðamenn og skaðræðisgripir í hópi förufólks fyrri alda. Jón Jónsson þjóðfræðingur fjallar í erindi sínu um nnokkra förumenn frá fyrri öldum sem þóttu sérstaklega óvinsælir og varasamir gestir.
Kl. 14:45 "Að hvíla í friði": Útfarar- og greftrunarsiðir í samtímanum. Dagrún Jónsdóttir þjóðfræðingur hefur að undanförnu rannsakað breytingar á slíkum siðum og fræðir um okkur um þær.
Kl. 14:00 - 16:00 Sjávarborg
Kl. 14:00 "Að hvíla í friði": Útfarar- og greftrunarsiðir í samtímanum. Dagrún Jónsdóttir þjóðfræðingur hefur að undanförnu rannsakað breytingar á slíkum siðum og fræðir um okkur um þær.
Kl. 14:45 Vandræðamenn og skaðræðisgripir í hópi förufólks fyrri alda. Jón Jónsson þjóðfræðingur fjallar í erindi sínu um nokkra förumenn frá fyrri öldum sem þóttu sérstaklega óvinsælir og varasamir gestir..
Kl. 16:00 - 18:00 Norska húsið
Mjókurstofa - sýningarými: Opnun myndlistarsýningarinnar Svörtu verkin eftir Halldór Kristjánsson. Titillinn vísar í svörtu málverkin eftir Francisco Goya, verk sem hann málaði í einangrun og héngu lengi óséð. Með þessari tilvísun vitna verk Halldórs í þá þá hefð: að skoða myrkur ekki sem hrylling heldur sem innra landslag, rými fyrir óvissu, kyrrð og dularfulla spennu. Líkt og hjá Goya eru það ekki skrímslin sem hræða, heldur það sem kraumar undir yfirborðinu.
Risloft: Snæfellsnes fortíðar, á baðstofuloftinu á 19. öld lak af þaki niður í rúmin, kuldinn klæddi herbergið og myrkrið fyllti rýmið mestan hluta ársins. Hér vann fólk, borðaði og svaf á sama stað – lífið á Snæfellsnesi var bæði erfitt og hræðilegt! Komdu í rökkrið á rislofti Norska hússins og skynjaðu fortíðina með nýrri framsetningu safnmuna. Þjóðfræðingurinn Anna Melsteð leiðir sýninguna og vekur sögurnar til lífsins í þessu draugalega en heillandi rými.
Léttar veitingar í boði.
Kl. 18:00 Frjáls tími, nú eru síðustu forvöð að finna út hver er morðinginn. Minnum á að panta borð á veitingastöðunum.
Kl. 20:00 Fosshótel
Glæpa Kviss, Anna Margrét Pálsdóttir sérleg áhugamanneskja um morð og glæpi, treður upp með glæpsamlegum spurningum.
Kl. 22:00 Skipper.
Opið frameftir - glæpa partí. Fáðu afslátt á barnum með því að láta mála þig í hræðlegum stíl.