Back to All Events

KK - Mugison - Jón Jónsson, í Stykkishólmskirkju

Kæru Hólmarar og nær sveitungar, það er okkur sönn ánægja og heiður að koma með Aðventutónleikana okkar í Stykkishólmskirkju

KK, Mugison og Jón Jónsson sameinast enn og aftur á aðventunni og bjóða upp á einstaka tónleika sem hafa á undanförnum árum orðið að föstum lið hjá fjölmörgum.

Á þessum tónleikum geta gestir átt von á blöndu af hlátri, hlýju, magnaðri tónlist og ógleymanlegri upplifun sem gera aðventuna enn betri.

Tónleikarnir hafa alla tíð verið uppseldir og notið mikilla vinsælda, enda fátítt að þessir listamenn stígi saman á svið. Það gæti því verið skynsamlegt að tryggja sér miða sem fyrst eftir að miðasalan hefst.

Venju samkvæmt verður með í för hinn hæfileikaríki Þorleifur Gaukur.

Forsala miða hefst 3. sept, en þeir sem eru á póstlista tix komast fram fyrir röð og geta keypt miða frá og með 1. sept

Miðaverð 9.500 í forsölu - 11.500 við innganginn.

Hópabókanir argvidburdir@gmail.com

Tónleikarnir verða án hlés og standa í 70 mínútur.

Ekki er selt í númeruð sæti heldur verður frjálst sætaval. Því mælum við eindregið með að mæta snemma til að ná góðum sætum

Kirkjan opnar 30 mín áður en að tónleikarnir hefast.

Earlier Event: 27 November
Aðventuhelgi í Stykkishólmi
Later Event: 25 March
Kokteilhelgi í Stykkishólmi