Back to All Events

Mugison í Gömlu kirkjunni

Það var svo geggjað að spila í gömlu kirkjunni síðast – hún er hreinlega fullkominn tónleikastaður. Ég hef beðið spenntur eftir að komast aftur og nú er loksins komið að því!

Ég ætla að mæta með öll mín bestu lög í farteskinu og leyfi kannski einu eða tveimur nýjum að fljóta með. Fyrir rúmum 20 árum kom ég fyrst fram sem Raftrúbador, umkringdur alls kyns græjum og tækjum. Undanfarið hef ég verið að dunda mér við að setja saman svipað „setup“ sem ég kalla orgel framtíðarinnar og ætla að lofa ykkur að heyra hvernig það hljómar í nokkrum lögum.

En mest ætla ég að glamra á gamla góða gítarinn. Spila, sprella og segja sögur. Hlakka mikið til að sjá ykkur!

Dagsetning: kl 20:00 (laugardagur) Gamla kirkjan í Stykkishólmi, 11 apríl 2026

Verð: 6.990 í forrsölu á tix, 8.990 í hurð.