Back to All Events

Óskahelgi - Upplifun fyrir öll skilingarvitin


Helgina 30. október -  1. nóvember bjóða Hólmarar til veislu fyrir öll skilningarvit; hreyfing, sauna, hlaup, heilun, dásamleg náttúra, gómsætur matur & skál!

Við hvetjum gesti til að panta sér borð og veitingastöðum bæjarins og gistingu.

FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER

Engla Reiki heilun. Hægt er að fá um helgina tíma hjá Gunnari Pétri Gunnarssyni Engla Reiki þerapista  (verð 6000kr). Þetta er heilun þar sem englar hjálpa við heilunina. Pantanir í síma 863-6580 eða gunnarpetur@gmail.com.

20:00 Sundlaugin: Flot, komdu og njóttu afslappandi flots á eigin vegum. Flottíminn er án leiðsagnar og greitt er venjulegt aðgangsgjald í sundlaugina.

21:00 Narfeyrarstofa: Anna Lind og Viktoría, sprelligosar og stuðpíur með meiru, standa fyrir stórskemmtilegu Óskahelgar - Pubquiz í Vínstúkunni.

LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER

10:00-10:40 Átak líkamsrækt: Spinning með Heiðrúnu, hressandi hjólatími. Þú stjórnar álaginu og hjólar á þínum forsendum við góða tónlist. Markmiðið er að styrkja líkamann, hreinsa hugann og ganga endurnærð úr.

11:30-12:30 Nýrækt: Náttúruhlaup um skóginn með Björgu Gunnars., ferskt loft í lungun, ilmur trjánna í nefið, finnum taktinn í náttúrunni.

13:00-13:45 Norska húsið: Kynning. Gunnar Pétur Gunnarsson EFT þerapisti verður með kynningu á EFT (tapping) þerapíu. Frítt inn. Þarftu að losa um stress, þreytu eða erfiðar tilfinningar? EFT er mjög „mjúk“ og áhrifarík aðferð til að losa um erfiðar tilfinningar t.d.  verki, stress, kvíða, fóbíur, sorg, áföll ofl. Um helgina er hægt að panta hálftíma prufutíma (verð 3.00kr), eða panta tvo tíma saman ef það er eitthvað ákveðið sem á að vinna með. Pantanir í síma 863-6580 eða gunnarpetur1@gmail.com

14:00-15:30 Saunahofið: Þegar haustmyrkrið færist yfir Hólminn, kuldinn sækir að og Óskahelgin gengur í garð, kveikjum við upp í Saunahofinu og bjóðum þér inn í hlýjuna. Leyfðu hitanum, ilminum og tónlistinni að taka völdin um stund. Gusmueistarinn leiðir þig í gegnum einstaka upplifun þar sem kraftur hitans mætir ró, slökun og góðri orku. Hiti • Ilmur • Tónlist • Upplifun. Aðgangseyrir: 4500 kr. Takmarkaður fjöldi plássa – skráning nauðsynleg í skilaboðum á instagram síðunni @saunahofið.

16:30-17:30 Helgafell: Óskaganga á Helgafell, samkvæmt gamalli þjóðtrú fær fólk sem gengur á Helgafell í fyrsta sinn að óska sér þrisvar. Ganga þarf í algjörri þögn, ekki líta til baka, horfa í austurátt á toppnum og bera óskirnar fram í huga sér án þess að segja neinum frá þeim. Að göngu lokinni verður boðið upp á óskadrykk. Gangan verður með leiðsögn og fræðslu. Aðgangseyrir: 5900 kr. Ath. 20 ára aldurstakmark.

20:00-22:00 Móvík: Sjósund, sauna og kakó, fersk kvöldstund við hafið fyrir líkama og sál. Finnum kraftinn og njótum augnabliksins saman. Aðgangseyrir: 2500 kr. í sauna. Cacao: 2500 kr. aukalega.

22:30 Skipper: Óskapartí! Nú er komið að því að sýna bestu taktana á dansgólfinu. Kokteilþeytingur í glas og dansskórnir á! 

SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER

10:00-11:30 Saunahofið: Þegar haustmyrkrið færist yfir Hólminn, kuldinn sækir að og Óskahelgin gengur í garð, kveikjum við upp í Saunahofinu og bjóðum þér inn í hlýjuna. Leyfðu hitanum, ilminum og tónlistinni að taka völdin um stund. Gusmueistarinn leiðir þig í gegnum einstaka upplifun þar sem kraftur hitans mætir ró, slökun og góðri orku. Hiti • Ilmur • Tónlist • Upplifun. Aðgangseyrir: 4500 kr. Takmarkaður fjöldi plássa – skráning nauðsynleg í skilaboðum á instagram síðunni @saunahofið

12:00 - 14:00 Nýrækt: Hægðu á og heilsaðu upp á kindurnar í fjólubláu fjárhúsunum í Nýrækt 4, sveitasæla fyrir líkama og sál.

16:00-17:00 Freyjulundur: Gríma leiðir kakó serimoníu. Eigum notalega stund saman. Gott er að hafa með sér púða og teppi. Aðgangseyrir: 3000 kr. Skráning á ellertsdottirevarut@gmail.com.

Yfir alla helgina:

Flower of life, pop up verslun í Freyjulundi: Laugardag og sunnudag kl. 12:00-16:00.

Sjávarpakkhúsið: 6 rétta smakkseðil á Óskahelgi. Borðapantanir á sjavarpakkhusid.is

Lagersala Kram í Lions húsinu: Föstudag kl. 13-18 og laugardag kl. 13-17.

Earlier Event: 17 October
Hanna frá Jaðri sýningaropnun
Later Event: 30 October
Engla reiki á Óskahelgi