Laugardaginn 14. febrúar.
Erindið verður flutt tvisvar:
Kl. 14:00: Sjávarborg
Kl. 14:45: Sjávarpakkhúsið.
Útfarar- og greftrunarsiðir hafa tekið örum breytingum á Íslandi á undanförnum árum. Fleiri valkostir standa fólki til boða en áður, nú eru til að mynda meira en helmingur útfara á höfuðborgarsvæðinu bálfarir. Viðhorf hafa breyst, umræðan er opnari og fólk hefur betri tækifæri til að koma óskum sínum á framfæri.
Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur hefur að undanförnu rannsakað þessar breytingar og tekið viðtöl við einstaklinga sem hafa velt fyrir sér hvernig standa á að málum þegar það sjálft fellur frá. Fólk sem vill til dæmis láta brenna sig og dreifa öskunni á ákveðnum stað, hefur valið sér legstæði í kirkjugarði, valið tónlistina fyrir jarðarförina eða ljósmyndina sem á að fylgja með dánartilkynningunni. En hvað er það sem hefur áhrif á þessar ákvarðanir og af hverju skiptir þetta fólk máli?