Back to All Events

Vandræðamenn og skaðræðisgripir í hópi förufólks fyrri alda

Laugardaginn 14. febrúar.
Erindið verður flutt tvisvar:

Kl. 14:00 Sjávarpakkhúsið

Kl. 14:45 Sjávarborg

Vandræðamenn og skaðræðisgripir í hópi förufólks fyrri alda.

Jón Jónsson þjóðfræðingur fjallar í erindi sínu um nokkra förumenn frá fyrri öldum sem þóttu sérstaklega óvinsælir og varasamir gestir. Í þessum hópi eru til dæmis Skriðu-Fúsi sem varð úti á Kerlingarskarði og Hljóða-Bjarni sem flakkaði um norðvesturhornið. Ansi magnaðar þjóðsögur eru sagðar um báða þessa.

Nær í tíma eru fleiri förumenn sem tilheyra þessum sérrstaka hópi sem magnaðar þjóðsögur eru sagðar um. Þar má t.d. nefna Stefán Helgason sem flakkaði um Húnavatnssýslur á 19. öldinni og Björn Snorrason sem fór um Eyjafjörð og víðar.