Back to All Events

Agens, áföll og valbeiting - upplestur Gyðu Ölvisdóttur

Guðrún Gyða Ölvisdóttir verður með upplestur úr nýútkominni bók sinni, Agnes, áföll og valdbeiting, í Norska húsinu föstudaginn 28. ágúst kl. 15:00. Öll hjartanlega velkomin, léttar veitingar í boði.

Árið 1830 var Agnes Magnúsdóttir 35 ára hálfshöggvin á Þrístöpum. Í gegnum atómljóð talar Agnes sjálf um áföllin sín, ógnarvaldið og þögnina sem fylgdi, (síðasta aftakan á Íslandi 1830).

Margir þekkja af eigin raun valdbeitingu yfirvalda og stjórnenda. Þetta er ný sýn. hennar eigin rödd, hún segir frá óskum sínum líðan og draumum, lífi sem kona á 19. öld. Hlið við hlið er fræðileg umfjöllun um valdbeitingu og áföllin sem hún varð fyrir. Um sárin sem valdið skilur eftir. En þetta er ekki bara saga Agnesar. Þetta er saga okkar allra.

Guðrún Gyða Ölvisdóttir er fædd í Þjórsártúni, Rangárvallasýslu, árið 1954 og ólst þar upp. Hún útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur 1976. Lauk sérnámi í lyf og handlæknisfræðum, háskólanámi í geðhjúkrun, lýðheilsufræði og stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Starfaði í áfallateymi Rauðakross Íslands um nokkurra ára skeið meðal annars í Suðurlandsskjálftunum árið 2000. Samhliða áratuga starfi innan heilbrigðiskerfisins hefur hún lagt rækt við myndlist og ljóðagerð.

Fjölbreytt lífsreynsla hennar og áhugi á lýðheilsu og sköpun endurspeglast í starfi hennar.

Hér veltir hún upp mannlegri hegðun, áföllum og sálarástandi Agnesar Magnúsdóttur og hvernig valdbeiting og tíðarandi 19. aldar spilar þar inn í.

---

Bókin er skrifuð á fallegan hátt af mikilli næmni og ástúð.

Vegna starfs síns skilur höfundur vel tilfinningar fólks sem hefur orðið fyrir erfiðleikum og áföllum.

Athygli mína vakti kaflinn um áfallastreituröskun sem afleiðing valdbeitingar.

Birna G. Hjaltadóttir

Þjóðfræðingur

Later Event: 25 October
Óskahelgi 2026