Elva Hreiðarsdóttir opnar sýninguna Stiklur í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla 12. ágúst næstkomandi.
Elva Hreiðarsdóttir fæddist í Ólafsvík 1964 og ólst þar upp. Hún stundaði nám við myndmenntadeild Kennaraháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 1989. Elva kenndi myndlist í nokkur ár áður en hún fór í Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 2000 úr grafíkdeild. Að auki hefur Elva sótt fjölda námskeiða í myndlist hér á landi og erlendis, þá helst í málun og solarprint. Elva hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hérlendis og erlendis.
Hún sækir myndefni sitt almennt til náttúrunnar og blandar gjarnan efnum úr henni í myndgerð sína hvort sem hún gerir grafíkplötur eða málverk. Elva býr í Reykjavík og hefur vinnustofu í Gufunesi. Hún kennir við Myndlistaskólann í Reykjavík ásamt því að starfa að hluta úr ári á Snæfellsnesi.