Back to All Events

Loppumarkaður á Amtsbókasafninu

Föstudaginn 1. maí, verður loppumarkaður á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Opið verður frá kl. 11-14.

Það verða 10 pláss í boði, en fólk getur líka tekið sig saman um pláss. Þau sem ætla að vera með þurfa sjálf að koma með fataslár og herðatré, pláss er fyrir eina slá á mann.

Þau sem hafa áhuga á að vera á markaðnum skrá sig á nanna@stykkisholmur.is, fyrir k. 12 á hádegi þann 30.apríl.

Hægt verður að mæta kl. 10:00 þann 1.maí, til að stilla upp vörum. Athugið að einungis er í boði að selja notaðar vörur, bæði fatnað og smávörur.