Back to All Events

Páll Óskar & Benni Hemm Hemm í Stykkishólmskirkju

Páll Óskar & Benni Hemm Hemm hafa slegið í gegn með nýju plötunni "Alveg". Lagið "Eitt af blómunum" ómaði um allt land og varð vinsælasta lag Rásar 2 árið 2025.

Nú eru þeir á leið í tónleikaferð og spila í fallegustu kirkjum landsins, þar sem þeir munu leika lögin á nýju plötunni ásamt eldri smellum. Hér gefst einstakt tækifæri til að heyra þessi gullfallegu lög í návígi við Palla og Benna, í glænýjum útsetningum.

Páll Óskar & Benni Hemm Hemm voru leiddir saman af Kidda hjálmi (Baggalútur) í þeim tilgangi að gera eitt lag fyrir sjónvarpsþáttinn Hljómskálann á RÚV. Lagið kom auðveldlega til þeirra og þeim fannst freistandi að gera svosem eins og eitt lag í viðbót. Svo kom annað lag og allt í einu var komin heil plata með titilinn "Alveg".

Palli og Benni fengu herskara af frábæru tónlistarfólki í stúdíóið með sér og útkoman er einstakt verk þar sem sameinast ljúfar og sætar laglínur og flugbeittir textar.

Platan hefur fengið frábæra dóma og Palli og Benni geta ekki beðið eftir því að bruna út um allt land að leika þessi nýju lög, ásamt fleiri smellum úr fortíð þeirra beggja.

Kirkjan opnar 30 mínútum fyrir hverja tónleika. Sætaval er frjálst, en Páll Óskar gengur um syngjandi meðal áhorfenda, svo nándin verður mikil.

Miðasala: https://checkout.tix.is/is/buyingflow/tickets/20865/