Þegar haustmyrkrið færist yfir Hólminn, kuldinn sækir að og Óskahelgin gengur í garð, kveikjum við upp í Saunahofinu og bjóðum þér inn í hlýjuna. Leyfðu hitanum, ilminum og tónlistinni að taka völdin um stund. Gusmueistarinn leiðir þig í gegnum einstaka upplifun þar sem kraftur hitans mætir ró, slökun og góðri orku. Hiti • Ilmur • Tónlist • Upplifun. Aðgangseyrir: 4500 kr. Takmarkaður fjöldi plássa – skráning nauðsynleg í skilaboðum á instagram síðunni @saunahofið.
Tímasetningar:
Laugardagur 31. október kl. 14:00-15:40.
Sunnudagur 1. nóvember kl. 10:00-11.30.