Óskaganga á Helgafell, samkvæmt gamalli þjóðtrú fær fólk sem gengur á Helgafell í fyrsta sinn að óska sér þrisvar. Ganga þarf í algjörri þögn, ekki líta til baka, horfa í austurátt á toppnum og bera óskirnar fram í huga sér án þess að segja neinum frá þeim. Að göngu lokinni verður boðið upp á óskadrykk. Gangan verður með leiðsögn og fræðslu. Aðgangseyrir: 5900 kr. Ath. 20 ára aldurstakmark.